Island

VELKOMINN TIL MT ÍSLAND

MT Ísland er alhliða tjóna- og þjónustufyrirtæki staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Við sérhæfum okkur í heildarlausnum vegna tjóna af völdum raka og myglu. Auk þess fjarlægum við skaðleg byggingarefni svo sem eins og Asbest, PCB og Blý.


Við vinnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Meðal viðskiptavina eru einstaklingar, fyrirtæki, leigu- og húsfélög og opinberar stofnanir.


Stefna fyrirtækisins er að vera leiðandi fyrirtæki á sviði tjóna. Við bjóðum uppá reynslumikið starfsfólk og leggjum ríka áherslu á metnað í starfi og vönduð vinnubrögð í öllum okkar verkefnum. Í dag starfa 18 manns hjá fyrirtækinu.


MT Ísland vill vera eftirsóttur vinnustaður, þar sem áhersla er lögð á vandvirkni, fagmennsku og símenntun starfsmanna sem eykur starfsánægju þeirra sem viðskiptavinir okkar svo njóta. Þetta gerir starfsmenn okkar ánægða í þágu viðskiptavina okkar. 

Okkar mikilvægasta auðlind eru starfsmenn fyrirtækisins.

HEIÐARLEIKI

Við erum heiðarlegir gagnvart okkar viðskiptavinum og samstarfsfélögum.

METNAÐUR

Við erum þrautseigir í lausnum verkefna. Með metnaði og þrautseigju viljum við vera bestir á okkar sviði

VIRÐING

Við virðum alla starfsmenn og viðskiptavini okkar.